Collection: Hnífar

Hnífar sem eru hentugir í alla notkun en eru þó sérstaklega hannaðir til að reynast vel í eldamennsku úti í náttúrunni. Hnífarnir eru handgerðir í hinni frægu "blade city", Solingen í Þýskalandi sem er þekkt fyrir framleiðslu hnífa, skæra og jafnvel sverða og hefur gert það síðan á 13.öld.

Hver hnífur er einstakur, gerður úr öflugu stáli með valhnetu handfangi.