Terms of service
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur:
Kaupandi hefur 14 daga til að skila vöru gegn fullri endurgreiðslu. Skilyrði fyrir skilum eru að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð skal innsigli hennar vera órofið. Skilafrestur byrjar að líða þegar vara er afhent skráðum viðtakanda. Sé óskað eftir endurgreiðslu skal kvittun fyrir vörukaupum að fylgja með. Sé vara fengin að gjöf eða kvittun ekki til staðar er vara endurgreidd í formi inneignar.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að koma vörunni til Meili (Miðhraun 22b, 210 Garðabær), eða endursenda með Dropp/Póstinum. Endursendingarkostnaður bætist við samkvæmt verðskrá Dropp og er breytilegur eftir landshlutum.
Hægt er að óska eftir skilum með því að senda email á meili@meiliverslun.is
Það er einnig hægt að hafa sambandi við okkur í síma 6959408 milli kl. 10-15 alla virka daga.
Vöruskipti:
Sé óskað eftir því að skipta/skila ógallaðri vöru í aðra vöru eða fá inneignarkóða/endurgreiðslu, ber viðskiptavini að koma vörunni til Meili á sinn kostnað.
Ef notast er við Dropp eða Póstinn ber viðskiptavini að greiða endursendingar/sendingarkostnaðinn, einnig er hægt að draga kostnaðinn frá inneigninni.
Dropp: Höfuðborgarsvæði 790kr || Landsbyggðin 990kr
Pósturinn: samkvæmt verðskrá Póstsins.
Gölluð vara:
Komi upp sú leiðinlega staða að kaupanda berist gölluð vara er honum boðin ný vara í staðinn. Sé varan ekki til á lager er hún endurgreidd að fullu eða kaupanda boðin önnur sambærileg vara í staðin. Endursendingar/sendingarkostnaður er á ábyrgð Meili
Útsölur og vöruskil:
Skilaréttur gildir ekki um vörur sem keyptar eru á útsölu.
Verð, skattar og gjöld:
Athugið að öll verð sem gefin eru upp í netversluninni eru með 11% eða 24% virðisaukaskatti, eftir því sem við á. Verð eru gefin upp með fyrirvara um mistök eða prentvillur og áskilur Meili sér rétt á að hætta við pantanir vegna rangra verðupplýsinga. Athugið að verð geta breyst án fyrirvara.
Greiðslur:
Greiðslur með kreditkorti fara í gegnum örugga greiðslugátt SaltPay (saltpay.is) sem hafa hlotið PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) öryggisvottun.